Steig á vigtina í morgun og er 80 kg og það er því byrjunarþyngdin. Finnst ekki gaman að sjá 8 eitthvað á vigtinni og er því að vona að ég sjái 7 eitthvað sem fyrst. Það að sjá 6 eitthvað hefur ekki gerst síðan 2003 og ég er staðráðin í því að láta það gerast núna. Eftir að hafa verið í barneignum síðustu ár er kominn tími á að gera eitthvað fyrir sjálfa mig.
Fötin þrengja að, andlitið þrútið….
Nokkur kg í plús….
Best að fara að gera eitthvað í þessu! Er loksins hætt í (afar langri x2) brjóstagjöf og get því farið að gera það sem mér sýnist. *Woop Woop*. Markmiðið er 60 kg og ég ætla ekki að plana neitt um of, bara byrja og sjá svo til með nammidaga og slíkt síðar. Ég er samt harðlega á móti því að hætta að borða ákveðnar fæðutegundir og borða því flestallt í hófi. Er matvönd samt svo þetta á ekki við um sviðakjamma eða slátur. Það ætti enginn að borða það árið 2011. Ætla ekki að vigta mig alveg strax samt, kannski eftir nokkra daga þegar jólabjúgurinn hefur runnið af…

